Kári Sighvatsson

Löggiltur fasteignasali · Eignamiðlun

Kári Sighvatsson – selur eins og vindurinn

Ég aðstoða við sölu og kaup á íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði og lóðum, frá verðmati til afsals.

Þjónusta

Fylgi þér alla leið

Þú hefur einn tengilið frá fyrsta símtali þar til lyklarnir skipta um hendur.

Sala á íbúðarhúsnæði

Verðmat, söluyfirlit, myndir og kynning. Ég sé um sýningar, tilboð og samskipti við kaupendur.

Atvinnuhúsnæði og lóðir

Greining á byggingarheimildum og deiliskipulagi, frumdrög að nýtingu og milliganga milli kaupenda, seljenda og byggingaraðila.

Verðmat

Rökstutt verðmat byggt á nýlegum sölum í hverfinu, ástandi eignarinnar og stöðu markaðarins.

Ráðgjöf við kaup

Aðstoð við að meta eign, gera kauptilboð og fara yfir fyrirvara áður en þú skuldbindur þig.

Söluferlið

Fimm skref frá verðmati að afsali

Svona gengur dæmigerð sala fyrir sig. Þú veist alltaf hvar málið stendur og hvað gerist næst.

  1. Verðmat

    Ég skoða eignina og legg fram rökstutt söluverð.

    Verðmat
  2. Undirbúningur

    Gögn sótt, myndataka og lýsing á eigninni.

    Söluyfirlit
  3. Kynning

    Eignin auglýst og sýnd áhugasömum kaupendum.

    Sýningar
  4. Tilboð

    Ég fer yfir tilboð með þér og sem um verð og fyrirvara.

    Kauptilboð
  5. Frágangur

    Kaupsamningur, greiðslur og loks afsal við afhendingu.

    Kaupsamningur · Afsal
Það er bara einn Kári Sighvatsson – hann selur fasteignir.

Um mig

Ég heiti Kári Sighvatsson og er lögfræðingur og löggiltur fasteignasali hjá Eignamiðlun. Ég vinn bæði með einstaklingum sem eru að selja eða kaupa heimili og með félögum og fyrirtækjum í viðskiptum með íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði og lóðir.

Í flóknari verkefnum fer ég ofan í deiliskipulag og byggingarheimildir og set fram frumdrög sem sýna hvað lóð eða eign getur orðið. Þannig sjá allir aðilar sömu myndina áður en samið er.

Kári SighvatssonLögfræðingur og löggiltur fasteignasali

Eignamiðlun

Hafðu samband

Hringdu, sendu póst eða bókaðu verðmat. Ég svara samdægurs á virkum dögum.